Síðan er auðvitað ömurlegt að fylgjast með gróðapungunum sem reka (HB)-Granda og fleiri sjávarútvegsfyrirtæki. Þessir menn eru algjörlega veruleikafirrtir og telja sig enga ábyrgð á samfélaginu í kringum sig. Þeir ættu að skammast sín og fara í meðferð - það verður að fara að taka alla þessa nýríku spraðurbassa og leggja þá inn. Gróðafíkn er hættulegri sjúkdómur en alkóhólismi. Drykkjurútarnir eyðileggja þó bara fjölskyldur sínar en gróðafíklarnir rústa heilu byggðarlögunum, landshlutunum og þjóðfélagshópunum!
Að svo mæltu vona ég að mínum gömlu vinnufélögum farnist vel í leit sinni að nýjum störfum og að þeir fái alla þá aðstoð við leitina sem mögulegt er.
Er ekki annars tími bæjarútgerðanna runninn upp á ný?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli