miðvikudagur, 1. október 2008

Við hefðum aldrei átt að losa okkur undan Dönum!

Nú er svo komið að við verðum sem Íslendingar að viðurkenna að stofnun lýðveldisins 17. júní 1944 var stærstu mistök Íslandssögunnar. Betra hefði verið að vera hluti af Danaveldi og hafa sömu stöðu og dönsku ömtin. Við hefðum svo getað haft okkar menningu sem þjóð innan ríkis, svipað og í mörgum löndum.

Þá værum við með dönsku krónuna sem er tengd við evruna, sem væri allavega mun betra en ástandið hér þessa dagana.

Vi er röde vi er hvide.....

fimmtudagur, 11. september 2008

Ellefti níunda: Sámur frændi, Síle og Svíþjóð

Tvær flugvélar voru þúfan sem velti þungu hlassi fyrir sjö árum síðan þegar flogið var á tvíbura-táknmyndir amerísks kapítalisma á Manhattan-eyju. Þar með hófst paranojutímabil hið mesta og persónufrelsi okkar var skert. Fórnarlömb Bandaríkjanna og leiguþýja þeirra (meðal annars Íslendinga) í Afganistan og Írak skipta milljónum. Illu heilli er heimurinn síst betri en fyrir hryðjuverkin hörmulegu. Ósómi Bin Laden gengur enn laus.

Allir muna hvar þeir voru staddir þegar fregnir bárust af voðaverkunum í Nýju Jórvík.

Fæstir muna ellefta september 1973 þegar Pinochet leppur Sáms frænda rændi völdum í Chile. Steypti af stóli með blóðugum hætti lýðræðislega kjörinni sósíalistastjórn Salvador Alliende. Þessum hinum sama Pinochet var dillað og hossað áratugum saman af fólki á borð við Margréti Thatcher og ónefndan mann sem er ofurseldur vitsmunalegum yfirburðum Georgs Bjarnfreðarsonar.

En kannski muna einhverjir ellefta september fyrir fimm árum þegar vonarstjarna sænskra jafnaðarmanna var stungin til bana. Dauði Önnu Lindt var gríðarlegt áfall fyrir Svía og sænska krata. Sárin frá morði Olofs Palme ýfðust upp og eiginlega hefur Svíþjóð ekki náð sér síðan. Þar er nú hægri stjórn en vonandi ná mínir menn völdum þar aftur í næstu kosningum. Þegar talað er um hægrimenn í Svíþjóð ber hins vegar að hafa í huga að þeir eru stuðningsmenn norrænna velferðarmódelsins - bara aðeins minni stuðningsmenn en kratarnir.

Ellefti september er í mínum huga einsog hver annar dagur. Hvorki betri né verri. Rétt er hins vegar að minna fólk á það að ellefti september hefur haft í för með sér fleiri voðaverk en hryðjuverkin í Bandaríkjunum.

Og þau ber að rifja upp, engu síður en árásina á Tvíburaturnana.

miðvikudagur, 10. september 2008

Vonandi reynast sjúkratryggingahrakspár VG og okkar vinstri-Samfylkingarmanna rangar!

Jæja, það fór auðvitað svo að þeir samþykktu sjúkratryggingafrumvarpið. Vonandi bara að orð Gústa við atkvæðagreiðsluna reynist rétt - að frumvarpið sé til góðs fyrir heilbrigðiskerfið og að samningsstaða opinberra stofnana verði góð eða jafnvel betri en nú, um leið og ,,slysum" í hugsanlegum útboðum á þjónustuþáttum fækki. Einnig að ekki verði á neinn hátt heimilt að fá forgangsmeðferð vegna efnahags - ,,borga sig framfyrir" einsog það er kallað.

Þetta síðastnefnda veit ég reyndar að félagar mínir í þingflokki Samfó hefðu aldrei samþykkt.


Ástæða andstöðu minnar við frumvarpið var fyrst og fremst tvíþætt: Í fyrsta lagi markaðsvæðingartónninn í því. Tal um kaupendur og seljendur í almannaþjónustu er bull og enn eitt dæmið um uppáþrengjandi innrás orðræðu nýfrjálshyggjunnar á svið sem áður voru heilög. Maður fer ekki í Bónus og kaupir betri heilsu, góðir hálsar. Þess vegna eru analógíur við markaðskerfið úti á túni! Jafnvel þó menn ætli að viðhalda félagslegu heilbrigðiskerfi.

Við vitum hvernig einkavæðingin í Bretlandi byrjaði - þá var búinn til svona hálf-markaður innan NHS á valdatíma Margrétar Thatcher. Tjallinn hefur aldrei beðið þess bætur. Þennan markaðsvæðingarbastarð tóku síðan Svíar upp og nú étur Samfylkingin fóðrið sitt frá Íhaldinu, einsog Guðni Ágústsson sagði við atkvæðagreiðslu dagsins.

Í annan stað var ég andvígur sjúkratryggingafrumvarpinu vegna alltof rúmra heimilda ráðherra til þess að geta sett reglugerðir uppúr lögunum. Þannig getur hann jafnvel laumað einkavæðingunni lengra en Samfylkingarmenn á þingi höfðu hugsað sér. Lög eiga að vera það skýr og nákvæm um efni sitt, að á hreinu sé að þingið hafi lagt línurnar en ekki viðkomandi ráðherra. Það er komið nóg af gólftuskuhlutverki Alþingis!

,,Nú verður klappað í Verslunarráði!" sagði fótósjopparinn Ögmundur í frammíkalli við atkvæðagreiðsluna. Vonum að framkvæmd nýju laganna gefi þeim leiðindaselskap ekki tækifæri til fagnaðarláta.

þriðjudagur, 9. september 2008

...eftir sumarleyfi!

Skrifari er hérmeð kominn aftur til byggða eftir grösugt og búsældarlegt sumar og mun taka til við að draga í hina hversdagslegu og pólitísku dilka á ritvelli þessum af endurnýjuðum krafti!

Meira síðar, en verð fyrst að lýsa yfir stuðningi við ályktun Ungra Jafnaðarmanna gegn sjúkratryggingafrumvarpi heilbrigðisráðherra. Þar sem mér mislíkar helv...... markaðsvæðingartónninn í þessu frumvarpi (sem flokkur minn gleypir hráan), þá fagna ég mjög ,,óþekktinni" í yngri flokkssystkinum mínum!

Seljum ekki ömmur okkar!

...aftur.....

.....

Opnað....

.......

föstudagur, 20. júní 2008

Ævintýraleg dramatík og stutt milli hláturs og gráturs!

Annar áttaliðaúrslitaleikur EM endaði á eins ótrúlegan hátt og hægt er. Eftir að Króatar komust yfir undir lok framlengingar náðu Tyrkir að jafna á elleftu stundu (svipað og Skaginn gegn Fram í bikarúrslitunum 1984). Og í vítaspyrnukeppninni stóð tyrkneska Kebabið í króatísku leikmönnunum. Ævintýralegt!

Hér kemur færeyski vinkillinn á þennan ótrúlega leik:

20. jun 2008, 21:44
Úr kjallaranum upp á hægstu tindar
Við bara einum minutti eftir at longdu leiktíðini gjørdi Rustu Recber ein ordans brølara. Men kortini gjørdi Turkaland aftur tað ómøguliga

Turkaland er í EM-hálvfinaluni. Tað er greitt, eftir at teir í kvøld hava sent Kroatia úr kappingini eftir brotssparkskapping. 
Einki mál kom teir fyrstu 90 minuttirnar, hóast Kroatia hevði greiða leikliga yvirvág. Og leingi bendi alt eisini á, at umdysturin skuldi enda málleysur. 
Men eftir 119 fór turkiski málverjin, Rustu Recber, ein ordans skógtúr, og so kundi Ivan Klasnic skora tað, sum líktist sigursmálinum. 
Kroatar høvdu tó ikki tikið við læru av tí, sum Turkaland hevur víst í kappingini. Og enn einaferð gjørdu turkarnir tað ógjørliga. 
Semi Senturk bankaði nevnliga bóltin í kassan við seinasta sparkinum av longdu leiktíðini, og so skuldu brotsspørk til. 

Málið frá Senturk hevði sjálvandi sent lagið á kroatum í botn, og teir prógvaðu eisini hetta við at misnýta trý av fyrstu fýra brotsspørkunum, og so var Rustu brádliga stóra hetjan hjá Turkalandi, sum fyri fyrstu ferð hevur vunnið seg fram til eina EM-hálvfinalu.

© Jákup Mørk - Sosialurin

Heimild: www.sportal.fo

miðvikudagur, 18. júní 2008

En guð býr í gengishruni amma....

.....gætu menn sagt eftir daginn í dag, líkt og skáldið sem nú er farið að syngja fyrir Toyotu-umboðið. 

Þetta er ekki hægt lengur með krónuna. Evru á morgun!

Það verða keyptir margir One-way með þessu áframhaldi. Væri ég sjálfur ekki búinn að binda mig varðandi ákveðna hluti hér heima, þá myndi maður íhuga alvarlega að kaupa einn slíkan miða. En annars verður maður að gera gott úr þessu og reyna að lifa af - enda er kreppuástandið núna ekki sambærilegt við þrengingarnar sem verkamannafjölskyldur fjórða áratugarins máttu þola.

En það verður að fara að sjá til lands í efnahagsaðgerðum stjórnvalda. Annars hefur Samfylkingin ekkert að gera í ríkisstjórninni.

Kem með meira færeyskt af EM á morgun.

laugardagur, 14. júní 2008

Hollandssigurinn í gær og útskrift Bryndísar!

Hollandssigur gærkvöldsins í frásögn manna sem urðu sjóveikir á miðri leið og komust aldrei til landnemaríkisins Íslands áttahundruðogsjötíuogeitthvað:

13. jun 2008, 22:30
Holland skjýtur frá hond
Mynd: Smílini vóru stór, tá Sneijder hevði skotið fjórða hollendska málið

Eftir at hava bukað italsku heimsmeistararnar, tók Holland sær hesa ferð av fronsku varaheimsmeistarunum

Hóast endaspælið er ungt, so hevur Holland longu vunnið sær status sum ein av heitastu favorittunum í EM-kappingini. 
Í kvøld vann Holland ikki minni enn 4-1 á Fraklandi, sum tó var sera væl við í seinna hálvleiki. 
Fyri steðgin var talan um mest sum óinspireraða framførslu frá Fraklandi, og tað var fult uppiborið, at Holland var á odda við málinum, sum Kuyt stútaði eftir horna. 
Eftir steðgin trýsti Frakland, og ein útjavning lá leingi í luftini. Men við Zidane-líknandi fótskifti byrjaði van Nistelrooy eitt framúr skjótálop, og so stóð brádliga 2-0. 
Frakland fekk eina vón, tá Henry minkaði um munin, men stadion-speakarin hevði ikki so mikið sum rópt navnið á franska málskjúttanum, áðrenn Robben hevði bankað bóltin upp undir franska nettakið. Og tá Sneijder so í yvirtíðini skoraði við vøkrum skoti, var hollendski dominansurin totalur. 
Holland hevur nú spælt móti báðum finalistunum frá seinastu HM-kappingini. Úrtøkan er 6 stig og 7-1 í málmuni, og tað er einki minni enn framúr. 
Teir eru nú vísir í oddasessinum í bólkinum, og tað kann gerast heilt stóri møguleikin hjá Rumenia, sum við sigri á júst Hollandi í seinasta dystinum kann gerast nummar tvey. 

Holland-Frakland 4-1 (1-0) 
1-0: Dirk Kuyt, 8. 
2-0: Robin van Pierse, 59. 
2-1: Thierry Henry, 71. 
3-1: Arjen Robben, 72. 
4-1: Wesley Sneijder, 90.


Heimild: www.sportal.fo

Yfir í aðra sálma: Nú þessa stundina er brautskráð frá Háskóla Íslands Bryndís eiginkona Eiríks vinar míns Jónssonar. Hún var að klára BS í iðnaðarverkfræði með miklum sóma - þriggja dætra móðirin - og er farin að vinna hjá Landsbankanum. Ég fer á eftir í útskriftarveisluna hennar á heimili þeirra Eiríks og dætranna í Safamýrinni. Það er mikil hamingja að útskrifast úr Háskólanum - enda stutt síðan undirritaður var í þeim gleðilegu sporum.

Til hamingju Bryndís!

föstudagur, 13. júní 2008

Nýggjustu EM-dystirnar!

Jæja áfram með EM-hornið:

Fyrst Þýskaland Króatía frá því í gærkveldi. Takið eftir fyrirsögninni hjá Sportalnum!

Týska verjan sveik

Heldur óvæntað eydnaðist tað Kroatia at vinna 2-1 á Týsklandi í kvøld

Toppdystur var í Klagenfurt í kvøld, har Kroatia og Týskland brustu saman. Eftir eina flúgvandi byrjan skuldi týska álopið standa sína roynd ímóti stinnu kroatisku verjuni. 
Verjan á týska landsliðnum er av nógvum spádd at vera veiki liðurin á týska landsliðnum, og tað var júst týska verjan, ið gav Kroatia leiðsluna. Eftir eitt gott innlegg úr vinstru síðu fekk Darijo Srna fótin á bóltin, sum endaði í netinum og legði Kroatia á odda 1-0. 
Eftir at hava sitið á tí mesta fyrru løtuna í seinna hálvleiki, eydnaðist tað Kroatia at økja um leiðsluna. Hetta var eitt heldur heppið mál, har Ivica Olić kom at standa púra fríur frammanfyri týska málinum. 
Týskland kom síðstu løtuna betur við í dystin, og teir fingu eisini minkað um munin. Við sínum triðja máli var tað Lukas Podolski, sum gjørdi støðuna til 2-1. Týskland kom ikki tættari enn hetta, og í síðstu løtu settu teir eitt gott punktum á vánaliga avrikið, tá ið innskifti Bastian Schweintsteiger fekk reytt fyri at hava sligið ein kroatiskan leikara. 

Kroatia liggur nú sera væl fyri í bólki B, og er so gott sum víðari. Týskland skal nú helst fáa sigur í seinasta bólkadystinum, sum verður ímóti Eysturríki. 

Kroatia - Týskland 2-1(1-0) 
1-0 Darijo Srna, 24. 


Síðan ,,dysturin" milli Ítalíu og Rúmeníu:

13. jun 2008, 19:05
Heimsmeistararnir tætt við at rúka

Italia fekk bara javnleik 1-1 ímóti Rumenia í kvøld, og ein sigur er nú eitt krav ímóti Fraklandi í síðsta bólkadystinum

Eftir eina vánaliga byrjan skuldi Italia í kvøld reisa seg, tá ið teir møttu Rumenia. Rumenska verjan stóð seg væl í undankappingini, og heldur ikki Frakland megnaði at skora ímóti teimum í fyrsta EM-endaspælsdystinum. 
Fyrri hálvleikur gekk javnt fyri seg, og hóast bæði liðini høvdu nakrar smávegis málmøguleikar, so endaði fyrr hálvleikur málleysur. 
Bæði liðini høvdu við hesum leikt tríggjar hálvleikir í EM-endapælinum uttan at skora mál, men í seinna hávleiki komu bæði á máltalvuna. Rumenia legði seg á odda í 55. minutti við máli frá álopsstjørnu teirra, Adrian Mutu. Uppleggið átti italski verjuleikarin, Gianluca Zambrotta, sum fór fullkomiliga skeivur av einari afturlegging til sín málmann. 
Gleðin hjá teimum gulu var tó stokkut, tí bara ein minutt seinni lá bólturin í hinum málinum. Christian Panucci átti seinasta fótin á hesum máli, sum spretti burturúr einum hornasparki. 
Bæði liðini høvdu stórar málmøguleikar at skora avgerandi máli, og størsta møguleikan fingu Adrian Muti og Rumenia, men Fiorentina-áleyparin brendi brotssparkið, sum hann og land sítt fingu tillutað. 

Nú sær av álvara svart út hjá italsku heimsmeistarunum, og sigur er nú eitt krav hjá teimum, tá ið teir møta Fraklandi í síðsta bólkadystinum. Umframt hetta er tað eisini eitt krav, at Rumenia ikki vinnur á Hollandi. 

Italia - Rumenia 1-1 (0-0) 
0-1: Adrian Mutu, 55. 
1-1: Christian Panucci, 56.


Heimild: www.sportal.fo

Annars eru Hollendingar vinir mínir að rústa þessari keppni. Svo einfalt er það. Þeir eru í banastuði og ég mun setja inn fréttir af stórsigri þeirra gegn Frökkum um leið og þær berast á öldum netvakans frá Færeyjum.

Hasshausarnir eru allavega líklegir Evrópumeistarar!

mánudagur, 9. júní 2008

,,Holland vann ein knúsandi sigur á Italia!"

Að sjálfsögðu hélt ég með nýlegum gestgjöfum mínum Hollendingum í kvöld. Og þeir voru frábærir! Vonandi að þeir fari alla leið. Víst er að nú er kátt á Leidseplein, Damtorginu og í Rauða hverfinu. Skálað í Heineken og reyktar sigurjónur um alla Amsterdam og eiginlega synd að vera þar ekki núna.

En svona sögðu vinir mínir á færeyska Sportalinum frá sigri lærisveina Van Bastens í kvöld:

Trýst á myndina fyri fulla stødd09. jun 2008, 21:35
Heimsmeistararnir fingu bank
Mynd: Ruud van Nistelrooy hevur júst lagt Holland á odda

Holland vann ein knúsandi 3-0 sigur á Italia, sum ikki líktist nøkrum heimsmeistara

Talan var um ein av teimum heilt góðu fótbóltsdystunum í EM-endaspælinum higartil, tá Holland vann ein knúsandi sigur á heimsmeistarunum. 
Hóast tølini tala sítt týðiliga mál um, at Holland var betra liðið, so munnu italiumenn helst vera við, at teir ikki høvdu teir so væl kendu marginalarnar við sær. 
Soleiðis stóð Nistelrooy fleiri metrar rangstaddur, tá hann skoraði fyrsta málið. Við næsta málið bjargaði van Bronckhorst á strikuni, áðrenn hann var snúningspunktið í framúr vøkrum kontraálopi, og beint undan triðja hollendska málinum hevði Pirlo sent frísparksroynd á stólpan. 
Men millum málini prógvaði Holland tó eisini, at teir eiga framúr fótbóltsúrmælingar. Teir vóru hvassari og meira ágangandi enn Italia, sum við ósigrinum fekk dyggasta lúsingin í fleiri ár. 
Holland tykist hinvegin stevna beint móti fjórðingsfinalunum.

(www.sportal.fo)

 

laugardagur, 7. júní 2008

Færeyska EM-hornið: Setunardysturin

Þar sem Evrópukeppnin er hafin mun ég vekja athygli lesenda á umfjöllun færeyskra vefmiðla um keppnina. Hér er það sem Föroyski Portalurin (portal.fo) skrifar um upphafsleik mótsins:


Trýst á myndina fyri fulla stødd

07. jun 2008, 18:46
Kekkia oyðilegði veitsluna hjá Sveis
Mynd: Alexander Frei fór grátandi av vøllinum

Vertsliðið hevði uppiborið betur

Setunnardysturin millum Sveis og Kekkia á Sankt Jakobs Leikvøllinum í Basel endaði við 1-0 sigri til Kekkia. Málið fall aftaná 5 korter, tá tann innskifti Vaclav Sverkos stýrdi uttan um sveisisku rangstøðufelluna, rann seg frían og stýrdi bóltin elegant í málið. Fyrsta landsliðsmálið hjá Sverkos, og fyrsta málið í EM-endaspælinum var veruleiki. Úrslitið kann ikki sigast at verða rættvíst, tí Sveis hevði nóg mikið av møguleikum til at vinna dystin, størsti málmøguleikin fall tá Johan Vonlanthen rakti yvirleggjaran. Beint áðrenn meintu sveisarar, at teir áttu brotsspark tá verjuleikarin Tomás Ujfalusi rakti bóltin við hondini inni í egnum brotsteigi. Hakan Yakin hevði eisini ein stóran málmøguleika, sum fór beint við síðunnar av málinum hjá Petr Cech. Í fyrra hálvleiki hevði Alexander Frei nakrar góðar møguleikar, men tíverri fyri vertstjóðina, so mátti Frei fara grátandi av vøllinum við einum knæskaða, og er tað ógvuliga sannlíkt, at hann verður ikki aftur at síggja á vøllinum hesaferð. Frei er liðskipari, og søguligur toppskjútti hjá Sveis við 35 málum, og tí kemur hetta ógvuliga dátt við.

Ég var fyrir viku síðan....

....í borg þar sem kostar fimm evrur að framkvæma grasafræðirannsóknir og fimmtíu evrur að gera hitt.

Ég mæli með Amsterdam. Hún er snilldarborg. Samgöngurnar frábærar og síkin með eindæmum falleg. Hefði reyndar verið gaman að vera þarna núna út af Evrópukeppninni. Minnir að Hollendingar eigi fyrsta leik á mánudag. Þegar ég og ferðafélagar mínir (tveir vinnufélagar) vorum á flugvellinum ytra að bíða eftir vélinni til Keflavíkur, þá voru allir í búðunum á Schiphol klæddir appelsínugulu, þannig að engu er logið um stemningu Niðurlandsbúa fyrir Evrópukeppninni.

En nú er í gangi fyrsti leikur í því ágæta stórmóti og eins gott að fylgjast með.

Ferðasagan kemur síðar.

Góðar stundir.

þriðjudagur, 27. maí 2008

Heilbrigðiskapítalistar og frábær (flóttamanna)skrif sveitunga!

Jæja börnin góð. Mikið eruð þið stillt og prúð (djók!).

Ríkisstjórnin er eins árs og til lukku með það. Hún hefur staðið undir væntingum að sumu leyti - á öðrum sviðum valdið vonbrigðum. Jóhanna og Björgvin hafa staðið sig best af Samfylkingarráðherrunum. Annars nenni ég ekki að blogga mikið um pólitík svona á sumrin. Mér fyrirgefst það vonandi.

Nema að ég setti í brýrnar við að lesa Moggagrein Jóhanns J. Ólafssonar kaupsýslumanns sem nú er stjórnarformaður elliheimilisins Grundar (sem á lítið skylt við það sem ég hef kallað einkarekstur). Þar vælir hann yfir því að ekki sé búið að einkavæða heilbrigðiskerfið og harmar sérstaklega að ríkt fólk geti ekki borgað sig framfyrir á biðlistunum. Alltaf jafn óþolandi þegar peningamenn tala um að ,,sjúklingarnir gleymist" og bera fyrir sig gömlu fólki sem á sparifé en er kannski ekki fjáð að öðru leyti. 

Að líkja heilbrigðisþjónustu við sólarlandaferðir og sumarhús á Flórída segir allt sem segja þarf um greinarhöfund og hans kapítalísku lífsskoðanir. Ég skil ekki í stjórnendum elliheimilisins Grundar að hafa svona mann sem stjórnarformann. Grund er einmitt ekki rekin með hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi og fellur því ágætlega undir hugmyndir okkar vinstri jafnaðarmanna um fjölbreytni í rekstri heilbrigðis- og menntakerfis án þess að kapítalistar þurfi að koma þar nærri.

Svo lýsir JJÓ frati á jafnaðarstefnu í heilbrigðiskerfum og talar um að hún felist í að jafna aðstöðu þeirra sem eru á biðlistum. Hann fyrirlítur augljóslega þau þjóðfélög sem náð hafa bestum árangri og skilað þegnum sínum mestri velferð og öryggi - og það án þess að menn færu í allsherjar þjóðnýtingar á framleiðslutækjunum. 

Sem betur fer er nýfrjálshyggjan að líða undir lok. Það sýnir brotlending útrásarfylleríisins, nýríku spraðurbassanna og gróðahyggjunnar. Það verður gaman að sjá áðurnefndan greinarhöfund og fleiri nýfrjálshyggjumenn stoppaða upp á safni þegar þar að kemur. Þá getum við hlegið að því að menn skuli yfirhöfuð hafa aðhyllst brauðmolahagfræðina.

En talandi um frjálshyggjumenn, þá verð ég að hrósa sveitunga mínum Ásgeiri Helga Gylfasyni fyrir frábæran pistil á Deiglunni um flóttamannamálið stóra á Skaganum. Eins fær Sigrún Ósk Kristjánsdóttir ritstjóri Skessuhorns prik fyrir eina bestu bloggfærslu sem ég hef lesið. Þar eru á skilmerkilegan hátt sett fram rökin fyrir því að við Skagamenn eigum að koma konunum og börnunum frá Palestínu til hjálpar, svo þau geti öðlast nýtt líf.

Síðan gladdi mig mjög hinn fjölmenni kynningarfundur sem haldinn var um flóttafólkið á Skaganum í gær. Viðhorf yfirgnæfandi meirihluta Skagamanna koma mér ekkert á óvart. Langflestum bæjarbúum er annt um náunga sinn og vilja koma honum til hjálpar er í nauðir rekur. Og sá náungakærleikur nær langt út fyrir bæjarmörk og landsteina.

Ég hef því ennþá þónokkra trú á dýrategundinni homo sapiens.

Góðar stundir.

laugardagur, 3. maí 2008

Burtu með Borgmeistarann!

Ég veit satt að segja ekki hvorir eru meiri aumingjar þessa dagana - Samfylkingarmenn í ríkisstjórn eða Sjálfstæðismenn í borgarstjórn. Hinir fyrrnefndu - nema Jóhanna Sig - eru eftir ágæta byrjun dottin í sömu hækjurulluna og Framsókn og Alþýðuflokkur gengdu áður. Þannig sagði Björgvin - annars ágætur viðskiptaráðherra okkar - um stimpilgjöldin í kvöld, að hann ætlaði að bíða eftir því hvað ,,félagi fjármálaráðherra" segði um það hvenær ætti að afnema þau endanlega!

En í Reykjavíkurborg er Íhaldið, uppistaða núverandi meirihluta, enn verri hækja F-listans en samstarfsflokkur þess í ríkisstjórn. Sjaldan hefur nokkur flokkur selt sig jafn svakalega og Sjálfstæðisflokkurinn í janúar. Allt gert til að komast í meirihluta - líkt og Samfylkingin síðasta vor. Á sama hátt og minn flokkur seldi frá sér veigamestu ráðuneytin við myndun núverandi ríkisstjórnar - þá seldu Villi, Gísli Marteinn, Hanna Birna og kó sig í bælinu allsber og leyfðu fyrrverandi flokksbróður sínum að troða ofaní kokið á sér áframhaldandi flugvelli í Vatnsmýrinni og þar af leiðandi enn dreifðari byggð í borginni.

Í dag kom síðan Ólafur F. - sem ég efa ekki að er ágætis maður - og gaf skít í metnaðarfulla tillögu sem unnið hafði sigur í Vatnsmýrarsamkeppninni. Það er greinilega óþarfi fyrir arkitekta og skipulagsfræðinga að leggja á sig nokkurra ára nám ef afdankaður pólitíkus hefur vinnu þeirra að engu.

Burt með Borgmeistarann og meirihluta F- og D-lista!

P.S. Og sem Skagamaður krefst ég þess að meirihluti F- og D-lista á Akranesi fari einnig frá völdum!

fimmtudagur, 1. maí 2008

Þeir sem hafa opið 1. maí eru réttdræpir!

Image-Anti-capitalism_color.jpg


Til hamingju með daginn vinnandi fólk til sjávar og sveita!

Gekk 1. maí í þvílíku blíðskaparveðri og var ánægður með betri þátttöku í hátíðarhöldunum en oft áður. Las Fréttablað dagsins áðan og reiddist þegar ég kom að síðu 7. Þar auglýsir Hagkaup að þeir hafi opið í dag.

Kaupmenn sem geta ekki andskotast til þess að hafa lokað á heilögum degi launafólks eru réttdræpir og fara beinustu leið niður til Kölska þegar þeir hrökkva upp af.

Látið 1. maí (og aðfangadag) í friði!

mánudagur, 28. apríl 2008

Ó vakna þú mín Þyrnirós!

Jæja nú er kominn tími á stjórnvöld að fara að gera eitthvað gegn verðbólgubálinu. Og þar verður Samfylkingin að koma sterk inn með kræsilegar lausnir handa láglaunafólki og einstaklingum með miðlungstekjur. Íhaldið mun aldrei hafa frumkvæði að slíku heldur verðum við að leiða aðgerðir til þess að bæta fólki kjaraskerðinguna sem þegar hefur haft kjarasamningana að engu.

Held annars að ný bloggfærsla sveitunga míns og bæjarfulltrúa Sf á Akranesi - Hrannar Ríkharðsdóttir - lýsi ágætlega óþreyju hins almenna Samfylkingarfólks eftir því að ríkisstjórnin fari nú að vinna vinnuna sína.

http://hronnrik.blog.is/blog/hronnrik/entry/522385/

En ef menn halda að Vinstri-grænir hefðu verið búnir að gera meira fyrir alþýðuna - væru þeir í stjórn með Íhaldinu - þá skjátlast þeim heldur betur!

laugardagur, 26. apríl 2008

,Rífum McDonalds niður, berjum síðan á Burger-King"

Ég er ekki neitt sérstakur stuðningsmaður vörubílstjóranna en vona að ýmsir fylgi í kjölfarið sem með réttu ættu að mótmæla. Við hæfi er að sítera í þennan frábæra texta Jónasar Sigurðssonar um uppreisnarklanið á skítadreifurunum og vona um leið að fólk hætti að láta bjóða sér okurverð á matvælum og fjármagni. Einnig að þjóðin láti ekki yfir sig ganga þá eyðileggingu sem framin er á almannaþjónustunni af Íhaldinu og með þegjandi samþykki flokks sem ég aðhyllist.....


Baráttusöngur Uppreisnarklansins á skítadreifurunum



Komið þið strákar allir út á gólfið með kylfurnar.
Smassið verðmætin niður, út með auðvaldið.
Kominn er tíminn, upprisin er þjóðfélagsvitundin.
Mætt út með bareflin, til að láta þig vita.
Til að spretta út svita.
Komið þið strákar, allir út á lífið í lökunum,
sem mamma gataði á vordögum.
Stendur með strákunum sínum.
Að lokum þyrpist stóðið niður strætin á skítadreifurunum,
til að mótmæla tækifærunum,
sem okkur standa til boða.
Tími til kominn.
Rífum McDonalds niður, berjum síðan á Burger-King.
Feður lokið dæturnar inni víð erum í bænum.
Bjartir þyrpum liði félagarnir með skoðanirnar
á nýlökkuðum spariskónum.
Komið þið strákar söfnumst saman um fjármagnið,
sem streymir inn fyrir framtakið,
hugsið ykkur bara.
Sá sem spyr einskis væntir ekki svara.
Því honum er sama,
um alla heimsins kaleiki og kenningar,
sem aldrei hafa valdið öðru en ama.
Tími til kominn.