fimmtudagur, 11. september 2008

Ellefti níunda: Sámur frændi, Síle og Svíþjóð

Tvær flugvélar voru þúfan sem velti þungu hlassi fyrir sjö árum síðan þegar flogið var á tvíbura-táknmyndir amerísks kapítalisma á Manhattan-eyju. Þar með hófst paranojutímabil hið mesta og persónufrelsi okkar var skert. Fórnarlömb Bandaríkjanna og leiguþýja þeirra (meðal annars Íslendinga) í Afganistan og Írak skipta milljónum. Illu heilli er heimurinn síst betri en fyrir hryðjuverkin hörmulegu. Ósómi Bin Laden gengur enn laus.

Allir muna hvar þeir voru staddir þegar fregnir bárust af voðaverkunum í Nýju Jórvík.

Fæstir muna ellefta september 1973 þegar Pinochet leppur Sáms frænda rændi völdum í Chile. Steypti af stóli með blóðugum hætti lýðræðislega kjörinni sósíalistastjórn Salvador Alliende. Þessum hinum sama Pinochet var dillað og hossað áratugum saman af fólki á borð við Margréti Thatcher og ónefndan mann sem er ofurseldur vitsmunalegum yfirburðum Georgs Bjarnfreðarsonar.

En kannski muna einhverjir ellefta september fyrir fimm árum þegar vonarstjarna sænskra jafnaðarmanna var stungin til bana. Dauði Önnu Lindt var gríðarlegt áfall fyrir Svía og sænska krata. Sárin frá morði Olofs Palme ýfðust upp og eiginlega hefur Svíþjóð ekki náð sér síðan. Þar er nú hægri stjórn en vonandi ná mínir menn völdum þar aftur í næstu kosningum. Þegar talað er um hægrimenn í Svíþjóð ber hins vegar að hafa í huga að þeir eru stuðningsmenn norrænna velferðarmódelsins - bara aðeins minni stuðningsmenn en kratarnir.

Ellefti september er í mínum huga einsog hver annar dagur. Hvorki betri né verri. Rétt er hins vegar að minna fólk á það að ellefti september hefur haft í för með sér fleiri voðaverk en hryðjuverkin í Bandaríkjunum.

Og þau ber að rifja upp, engu síður en árásina á Tvíburaturnana.

miðvikudagur, 10. september 2008

Vonandi reynast sjúkratryggingahrakspár VG og okkar vinstri-Samfylkingarmanna rangar!

Jæja, það fór auðvitað svo að þeir samþykktu sjúkratryggingafrumvarpið. Vonandi bara að orð Gústa við atkvæðagreiðsluna reynist rétt - að frumvarpið sé til góðs fyrir heilbrigðiskerfið og að samningsstaða opinberra stofnana verði góð eða jafnvel betri en nú, um leið og ,,slysum" í hugsanlegum útboðum á þjónustuþáttum fækki. Einnig að ekki verði á neinn hátt heimilt að fá forgangsmeðferð vegna efnahags - ,,borga sig framfyrir" einsog það er kallað.

Þetta síðastnefnda veit ég reyndar að félagar mínir í þingflokki Samfó hefðu aldrei samþykkt.


Ástæða andstöðu minnar við frumvarpið var fyrst og fremst tvíþætt: Í fyrsta lagi markaðsvæðingartónninn í því. Tal um kaupendur og seljendur í almannaþjónustu er bull og enn eitt dæmið um uppáþrengjandi innrás orðræðu nýfrjálshyggjunnar á svið sem áður voru heilög. Maður fer ekki í Bónus og kaupir betri heilsu, góðir hálsar. Þess vegna eru analógíur við markaðskerfið úti á túni! Jafnvel þó menn ætli að viðhalda félagslegu heilbrigðiskerfi.

Við vitum hvernig einkavæðingin í Bretlandi byrjaði - þá var búinn til svona hálf-markaður innan NHS á valdatíma Margrétar Thatcher. Tjallinn hefur aldrei beðið þess bætur. Þennan markaðsvæðingarbastarð tóku síðan Svíar upp og nú étur Samfylkingin fóðrið sitt frá Íhaldinu, einsog Guðni Ágústsson sagði við atkvæðagreiðslu dagsins.

Í annan stað var ég andvígur sjúkratryggingafrumvarpinu vegna alltof rúmra heimilda ráðherra til þess að geta sett reglugerðir uppúr lögunum. Þannig getur hann jafnvel laumað einkavæðingunni lengra en Samfylkingarmenn á þingi höfðu hugsað sér. Lög eiga að vera það skýr og nákvæm um efni sitt, að á hreinu sé að þingið hafi lagt línurnar en ekki viðkomandi ráðherra. Það er komið nóg af gólftuskuhlutverki Alþingis!

,,Nú verður klappað í Verslunarráði!" sagði fótósjopparinn Ögmundur í frammíkalli við atkvæðagreiðsluna. Vonum að framkvæmd nýju laganna gefi þeim leiðindaselskap ekki tækifæri til fagnaðarláta.

þriðjudagur, 9. september 2008

...eftir sumarleyfi!

Skrifari er hérmeð kominn aftur til byggða eftir grösugt og búsældarlegt sumar og mun taka til við að draga í hina hversdagslegu og pólitísku dilka á ritvelli þessum af endurnýjuðum krafti!

Meira síðar, en verð fyrst að lýsa yfir stuðningi við ályktun Ungra Jafnaðarmanna gegn sjúkratryggingafrumvarpi heilbrigðisráðherra. Þar sem mér mislíkar helv...... markaðsvæðingartónninn í þessu frumvarpi (sem flokkur minn gleypir hráan), þá fagna ég mjög ,,óþekktinni" í yngri flokkssystkinum mínum!

Seljum ekki ömmur okkar!

...aftur.....

.....

Opnað....

.......