mánudagur, 28. apríl 2008

Ó vakna þú mín Þyrnirós!

Jæja nú er kominn tími á stjórnvöld að fara að gera eitthvað gegn verðbólgubálinu. Og þar verður Samfylkingin að koma sterk inn með kræsilegar lausnir handa láglaunafólki og einstaklingum með miðlungstekjur. Íhaldið mun aldrei hafa frumkvæði að slíku heldur verðum við að leiða aðgerðir til þess að bæta fólki kjaraskerðinguna sem þegar hefur haft kjarasamningana að engu.

Held annars að ný bloggfærsla sveitunga míns og bæjarfulltrúa Sf á Akranesi - Hrannar Ríkharðsdóttir - lýsi ágætlega óþreyju hins almenna Samfylkingarfólks eftir því að ríkisstjórnin fari nú að vinna vinnuna sína.

http://hronnrik.blog.is/blog/hronnrik/entry/522385/

En ef menn halda að Vinstri-grænir hefðu verið búnir að gera meira fyrir alþýðuna - væru þeir í stjórn með Íhaldinu - þá skjátlast þeim heldur betur!

laugardagur, 26. apríl 2008

,Rífum McDonalds niður, berjum síðan á Burger-King"

Ég er ekki neitt sérstakur stuðningsmaður vörubílstjóranna en vona að ýmsir fylgi í kjölfarið sem með réttu ættu að mótmæla. Við hæfi er að sítera í þennan frábæra texta Jónasar Sigurðssonar um uppreisnarklanið á skítadreifurunum og vona um leið að fólk hætti að láta bjóða sér okurverð á matvælum og fjármagni. Einnig að þjóðin láti ekki yfir sig ganga þá eyðileggingu sem framin er á almannaþjónustunni af Íhaldinu og með þegjandi samþykki flokks sem ég aðhyllist.....


Baráttusöngur Uppreisnarklansins á skítadreifurunum



Komið þið strákar allir út á gólfið með kylfurnar.
Smassið verðmætin niður, út með auðvaldið.
Kominn er tíminn, upprisin er þjóðfélagsvitundin.
Mætt út með bareflin, til að láta þig vita.
Til að spretta út svita.
Komið þið strákar, allir út á lífið í lökunum,
sem mamma gataði á vordögum.
Stendur með strákunum sínum.
Að lokum þyrpist stóðið niður strætin á skítadreifurunum,
til að mótmæla tækifærunum,
sem okkur standa til boða.
Tími til kominn.
Rífum McDonalds niður, berjum síðan á Burger-King.
Feður lokið dæturnar inni víð erum í bænum.
Bjartir þyrpum liði félagarnir með skoðanirnar
á nýlökkuðum spariskónum.
Komið þið strákar söfnumst saman um fjármagnið,
sem streymir inn fyrir framtakið,
hugsið ykkur bara.
Sá sem spyr einskis væntir ekki svara.
Því honum er sama,
um alla heimsins kaleiki og kenningar,
sem aldrei hafa valdið öðru en ama.
Tími til kominn.

mánudagur, 21. apríl 2008

Jæja!

Ekki er hægt að vera svona latur við skriftir ónei! En kannski má segja yðar einlægum til vorkunnar að hann hefur lent frekar illa niður á jörðinni eftir að hafa svifið á skýi vikum saman vegna útskriftarinnar af Melakleppnum.

Það fylgir því þegar maður nær einhverju gleðilegu markmiði í lífinu að maður kemst niður á jörðina og þá þarf að kippa sér upp í þægilega flughæð á nýjan leik án þess að flogið sé of nálægt sólinni. Nú er það bara alvara lífsins: Leit að nýrri vinnu í samræmi við menntunina. Ég er samt enn í gamla starfinu og hætti ekkert þar fyrr en nýtt hefur rekið á fjörur mínar. Síðan eru búsetumálin í uppnámi í milljónasta skipti á ævi minni. Það er virkilega sálardrepandi einsog ástandið er núna á þeim markaði. En ég hef eigi að síður tekið þá ákvörðun að hefja sjálfstæða búsetu á nýjan leik þó eitthvað verði húsakynnin látlausari en þau sem ég núna bý í. 

Svo sér maður bara til með framtíðina. Við förum í ESB fyrr en varir og erlendir bankar munu von bráðar leysa okkur alþýðuna úr vistarbandinu.

Vonandi að maður endi í sæmilegu jobbi þegar upp er staðið og húsnæðismálin leysist á farsælan hátt. Allavega - ég ætla ekki að liggja lengur í bloggdvala og segi sinnuleysinu stríð á hendur.

Góðar stundir.