Jæja börnin mín leið og ljót - einsog ónefndur gamall kennari minn sagði í gríni við okkur bekkjarsystkinin í denn. Ég er kominn aftur í bloggheima eftir langa þögn. Og ekki dauður enn, líktog Mannakornin kváðu um árið. Ég bið lesendur forláts á fátæklegri umgjörð til þess að byrja með, en vonast til með að geta flutt efni af gömlu síðunum mínum við fyrsta tækifæri.
Svo er ekki verra að maður læri aðeins betur á nýja Makkann sinn til þess að geta stundað almennileg skrif á hann - bæði hér á síðunni og svo líka í svo mörgu öðru sem ég þarf að skrifa þessa dagana. Hvernig til dæmis í andsk... á maður að koppí-peista í Makka?
Annars væri ég alveg til í að vera núna meðal Börsunga (íbúanna - ekki tuðrusparkaranna!) enda ár núna síðan maður lifði lífskúnstnerslífi í Barselónu og flýði sem fætur toguðu undan aggressívum portkonunum Römblunnar! 15-20 stiga hiti á daginn í nóvember er þægilega næs og svo er borgin bara æðisleg.
Annars læt ég lokið skrifum að sinni. Gleðileg....j... nei það er aðeins of snemmt! Samt aðeins þrjár vikur rúmar í jólaföstuna og hinn raunverulega undirbúningstíma jólanna.
Adieu
laugardagur, 10. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Knús ;)
Skrifa ummæli