mánudagur, 25. febrúar 2008

Bakkalárus Artíum!

Jæja góðir hálsar. Þá er ég orðinn stjórnmálafræðingur Bakkalárus Artíum. Í sumum kortunum og kveðjunum sem ég fékk á laugardaginn var ég líka titlaður Cand. Pol.

Dagurinn langþráði var svo sannarlega stórkostlegur og einn af þessum dögum sem maður mun rifja upp alveg fram í andlátið. Athöfnin í Háskólabíói var hátíðleg, mjög vel skipulögð og gekk vel fyrir sig. Aðeins einn og hálfan tíma tók að brautskrá hátt í 300 viðstadda kandídata og stóðu deildarforsetar og rektor sína plikt með mikilli prýði auk þess sem Gylfi Dalmann kynnir sló á létta strengi. Háskólakórinn söng einnig af stakri snilld.

Um kvöldið var síðan veisla heima. Ég mun segja nánar frá útskriftardeginum í næstu færslu þar sem þreytan segir til sín og kominn tími til að fara í háttinn enda dagvaktavika í gangi.

Góðar stundir.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hva er bara allt steindautt? Væri ekki ráð að fara að tjá sig og reyna að tala þetta 1929 ástand upp? Upp með sprokið, herr cand. pol.

Nafnlaus sagði...

Maður er farinn að sakna þinna skemmtilegu pisla gamli vinur, vonandi hefurðu það gott
kveðja
Hallgrímur Ólafsson

Ragga Rokkar sagði...

Og ???????
Konni minn þú ert ekki að standa þig skan !!

paradísarfuglinn sagði...

Hehe já verið rólegur í blogginu. Nú fer ég fer að rífa mig upp á rassgatinu og ekki orð um það meir!