fimmtudagur, 11. september 2008

Ellefti níunda: Sámur frændi, Síle og Svíþjóð

Tvær flugvélar voru þúfan sem velti þungu hlassi fyrir sjö árum síðan þegar flogið var á tvíbura-táknmyndir amerísks kapítalisma á Manhattan-eyju. Þar með hófst paranojutímabil hið mesta og persónufrelsi okkar var skert. Fórnarlömb Bandaríkjanna og leiguþýja þeirra (meðal annars Íslendinga) í Afganistan og Írak skipta milljónum. Illu heilli er heimurinn síst betri en fyrir hryðjuverkin hörmulegu. Ósómi Bin Laden gengur enn laus.

Allir muna hvar þeir voru staddir þegar fregnir bárust af voðaverkunum í Nýju Jórvík.

Fæstir muna ellefta september 1973 þegar Pinochet leppur Sáms frænda rændi völdum í Chile. Steypti af stóli með blóðugum hætti lýðræðislega kjörinni sósíalistastjórn Salvador Alliende. Þessum hinum sama Pinochet var dillað og hossað áratugum saman af fólki á borð við Margréti Thatcher og ónefndan mann sem er ofurseldur vitsmunalegum yfirburðum Georgs Bjarnfreðarsonar.

En kannski muna einhverjir ellefta september fyrir fimm árum þegar vonarstjarna sænskra jafnaðarmanna var stungin til bana. Dauði Önnu Lindt var gríðarlegt áfall fyrir Svía og sænska krata. Sárin frá morði Olofs Palme ýfðust upp og eiginlega hefur Svíþjóð ekki náð sér síðan. Þar er nú hægri stjórn en vonandi ná mínir menn völdum þar aftur í næstu kosningum. Þegar talað er um hægrimenn í Svíþjóð ber hins vegar að hafa í huga að þeir eru stuðningsmenn norrænna velferðarmódelsins - bara aðeins minni stuðningsmenn en kratarnir.

Ellefti september er í mínum huga einsog hver annar dagur. Hvorki betri né verri. Rétt er hins vegar að minna fólk á það að ellefti september hefur haft í för með sér fleiri voðaverk en hryðjuverkin í Bandaríkjunum.

Og þau ber að rifja upp, engu síður en árásina á Tvíburaturnana.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rétt skal vera rétt. Hún var stunginn til bana en ekki skotin!!!

"Anna Lindh died on the early morning of September 11, 2003, following a knife attack in Stockholm on the afternoon of September 10. Just after 4 p.m., she was attacked while shopping in the ladies' department at the Nordiska Kompaniet department store in central Stockholm. She was stabbed in the chest, stomach and arms."

Ragga Rokkar sagði...

Flott skrif hjá þér brósi !