,,Ágæti kandídat
Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands veturinn 2008 fer fram í Háskólabíói laugardaginn 23. febrúar nk. Athöfnin hefst kl. 13.00 og er áætlað að henni ljúki um kl. 15.00...."
Og síðan tekur við lýsing á framgangi seremóníunnar og verður rektor meðal annars tíðrætt um hvítt strik á sviðinu. Síðan er spurning hvort maður stökkvi langstökk eða þrístökk af strikinu góða!
Já góðir lesendur, það verður ekki um villst. Ég mun mæta á svið Háskólabíósins góða eftir átta daga og taka við vini minum honum Bakkalárusi Artíum úr hendi míns ágæta pípureykjandi deildarforseta - Ólafs Þ. Harðarsonar - og fæ síðan að taka í spaðann á rektornum henni Kristínu Ingólfs.
Loksins loksins segir maður bara! Símaskráin og netsystkini hennar - já púnktur is - titla mig nú þegar sem stjórnmálafræðing, en að sjálfsögðu verð ég það ekki fyrr en eftir rúma viku.
Ekki skemmir fyrir að BA-ritgerðin var algjört dúndur er kom að einkunnagjöf. Minn góði lærifaðir Svanur Kristjánsson og prófdómari ónefndur útí bæ komu sér saman um að gefa mér níu fyrir kvikindið!
Nú er bara tóm gleði hér á bæ yfir frábærum endaspretti í háskólanum og komandi útskriftartildragelsi. Nú er fátt annað en að hefjast handa við að skipuleggja útskriftarfögnuð þann 23. febrúar næstkomandi.
Góðar stundir.
1 ummæli:
Æði darling enn og aftur til hamó !!!
Skrifa ummæli