miðvikudagur, 18. júní 2008

En guð býr í gengishruni amma....

.....gætu menn sagt eftir daginn í dag, líkt og skáldið sem nú er farið að syngja fyrir Toyotu-umboðið. 

Þetta er ekki hægt lengur með krónuna. Evru á morgun!

Það verða keyptir margir One-way með þessu áframhaldi. Væri ég sjálfur ekki búinn að binda mig varðandi ákveðna hluti hér heima, þá myndi maður íhuga alvarlega að kaupa einn slíkan miða. En annars verður maður að gera gott úr þessu og reyna að lifa af - enda er kreppuástandið núna ekki sambærilegt við þrengingarnar sem verkamannafjölskyldur fjórða áratugarins máttu þola.

En það verður að fara að sjá til lands í efnahagsaðgerðum stjórnvalda. Annars hefur Samfylkingin ekkert að gera í ríkisstjórninni.

Kem með meira færeyskt af EM á morgun.

Engin ummæli: