Ég mæli með Amsterdam. Hún er snilldarborg. Samgöngurnar frábærar og síkin með eindæmum falleg. Hefði reyndar verið gaman að vera þarna núna út af Evrópukeppninni. Minnir að Hollendingar eigi fyrsta leik á mánudag. Þegar ég og ferðafélagar mínir (tveir vinnufélagar) vorum á flugvellinum ytra að bíða eftir vélinni til Keflavíkur, þá voru allir í búðunum á Schiphol klæddir appelsínugulu, þannig að engu er logið um stemningu Niðurlandsbúa fyrir Evrópukeppninni.
En nú er í gangi fyrsti leikur í því ágæta stórmóti og eins gott að fylgjast með.
Ferðasagan kemur síðar.
Góðar stundir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli